Miðar frá
Vistaðu viðburðinn og við látum þig vita ef dagsetning, tími eða staður breytist.
Lýsing
Lesa meira
Hof Akureyri || 6. desember 2026
Hátíðarsýning Listdansskólans Steps Dancecenter – NARNÍA
Við bjóðum ykkur velkomin í töfrandi jólasýningu þar sem dans, tónlist og ævintýri sameinast í heillandi upplifun fyrir alla fjölskylduna!
NARNÍA verður flutt í danslegum búningi þar sem hinn ævintýralegi heimur handan fataskápsins lifnar við á sviðinu. Þar bíða okkar töfraverur, óvænt ævintýri og barátta góðs og ills. En munu töfrar Narníu og kraftur hugrekkis og vináttu sigra að lokum?
Dansarar úr Listdansskólanum Steps Dancecenter færa þennan ævintýraheim til lífs með fjölbreyttum dansstílum, litríkum búningum og einstakri sviðsframkomu. Saman skapa þeir töfrandi sýningu þar sem ímyndunaraflið fær að njóta sín.
Sýningin er opin öllum og býður upp á einstaka upplifun fyrir fjölskyldur, vinahópa og alla sem vilja njóta aðventunnar í ævintýralegu umhverfi.
Tryggðu þér miða og stígðu með okkur inn í töfraheim Narníu! Ævintýri, gleði og töfrandi stundir bíða ungra sem aldinna.
Viðbótarupplýsingar
Búið til með gervigreindSjálfvirkar tillögur sem haldið er aðskildum frá opinberum upplýsingum skipuleggjanda.
Hátíðarsýning Listdansskólans Steps Dancecenter – NARNÍA. Dans, tónlist og ævintýri sameinast í jólasýningu fyrir alla fjölskylduna. Dansarar færa Narníu til lífs með fjölbreyttum dansstílum og litríkum búningum. Sýningin er opin öllum.
Greindir þátttakendur: Listdansskólinn Steps Dancecenter