Jólin enn á ný með Margréti Eir
Fimmtudagur, 3. desember 2026 · 20:00Salurinn · Kópavogur
Miðar frá
11.250 kr.
Vistaðu viðburðinn og við látum þig vita ef dagsetning, tími eða staður breytist.
Lýsing
Lesa meira
Salurinn || 3. desember 2026
Stórsöngkonan Margrét Eir hefur í rúma þrjá áratugi heillað landsmenn með sinni kraftmiklu rödd, hæfileikum og óneitanlegum sjarma en hún hefur fyrir löngu skipað sér sess sem ein okkar færasta og ástsælasta söngkona. Rödd Margrétar er ekki síst orðin ómissandi hluti af jólatónaflóðinu með öllu frá árlegum jólatónleikum í Fríkirkjunni í Hafnarfirði og Salnum í Kópavogi, að hinum ógleymanlegu Frostrósum.
Þetta árið færir Margrét okkur ljúfa en hátíðlega tóna við vandaða, íslenska texta með útgáfu einstakrar jólaplötu en útgáfunni fögnum við að sjálfsögðu með glæsilegum jóla- og útgáfutónleikum í Salnum. Þar má hlýða á lög af plötunni í bland við önnur vel valin jólalög í flutningi Margrétar ásamt hljómsveit og frábærum gestum. Ekki missa af þessu tækifæri til að kynnast plötunni, kaupa hana á afsláttarverði og hverfa frá hversdagsamstrinu á dásamlegri kvöldstund í Salnum. Áheyrendur mega eiga von á sannkallaðri veislu sem leiðir okkur brosandi inn í anda jólanna.
Hljóðfæraleikarar
Börkur Hrafn Birgisson
Þorgrímur Jónsson
Daði Birgisson
Óskar Þormarsson
Raddir:
Helga Margrét Clarke
Gunnur Arndís Halldórsdóttir