Fara í efni
360expOpin beta
Skrá inn
Daníel Helgason
Tónlist

Daníel Helgason

Sunnudagur, 18. október 2026 · 20:00IÐNÓ · Reykjavík

Skoða upprunalega vefinnFrá 3.000 kr.

Vistaðu viðburðinn og við látum þig vita ef dagsetning, tími eða staður breytist.

Lýsing

Lesa meira

Daníel Helgason

Gítarleikarinn og tónskáldið Daníel Helgason gaf út sína fyrstu plötu, Particles, árið 2023. Hann hefur einnig gefið út plötur með hljómsveitunum DÓH tríó og Los Bomboneros. Þann 18. október ætlar hann að leika lög af Particles í nýjum útsetningum ásamt nýju efni.

Hann útskrifaðist sem gítarleikari úr Tónlistarskóla FÍH árið 2012 og sem tónskáld úr Listaháskóla Íslands árið 2016. Hann hefur verið virkur í íslensku tónlistarlífi og komið fram og hljóðritað m.a. með Kristjönu Stefánsdóttur, Unu Stef, Svavari Knúti, Rósu Guðrúnu og fleirum. Daníel hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin árið 2018 sem bjartasta vonin í djass-og blústónlist.

Bandið:
Daníel Helgason: gítar
Tumi Torfason: trompet
Ingibjörg Elsa Turchi: bassi
Matthías Hemstock: trommur

TónlistTónleikar

Hvar

IÐNÓ

Vonastræti 3, 101 Reykjavík, Reykjavík

Skoða alla viðburði á þessum stað