Jólatónleikar Sinfóníunnar - Sinfóníuhljómsveit Íslands
Harpa, ReykjavíkDagsetningar: 4
Sinfóníuhljómsveit Íslands - Eldborg || 12. og 13. desember 2026 Jólatónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands eru sannkölluð hátíðarstund fyrir jólabörn á öllum aldri. Að vanda ríkir hátíðlegur blær í Eldborg þar sem ungir hljóðfæraleikarar og ballettdansarar ásamt einsöngvurum og kórum færa gestum glæsilega og fjölbreytta dagskrá. Sígildar jólaperlur fléttast saman við klassísk ævintýri sem koma öllum í hátíðarskap. Maxímús Músíkús setur upp rauðu húfuna og trúðurinn Barbara flytur sína alkunnu…