Fara í efni
360expOpin beta
Skrá inn
Aftur í viðburði
Tónlist

Kosmískt skítamix - Hljómsveitin Eva

Laugardagur, 30. janúar 2027 · 20:00Tjarnarbíó · Reykjavík

Vistaðu viðburðinn og við látum þig vita ef dagsetning, tími eða staður breytist.

Sæktu iPhone-appið

Lýsing

Lesa meira

10. sýning Táknmálstúlkuð

Verkið Kosmískt skítamix er ferðasaga vinkvenna og vinnufélaga í gegnum örmögnun og þá ómögulegu vinnu að skapa listaverk sem bjargar heiminum. Verkið er saga Hljómsveitarinnar Evu sem einu sinni var up and coming framúrstefnu hljómsveit og sviðslistahópur en þarf nú að horfast í augu við raunveruleikann; andleg veikindi, dauðann, adhd greiningar, snemmbúið breytingaskeið og þá staðreynd að þær hafa ekki samið nýtt lag í fimm ár. Nú bretta þær upp ermarnar og segja fólkinu frá því sem á daga þeirra hefur drifið í þessum grátbroslega en kosmíska tónleik ennþá með þá von í hjartanu að veita áhorfendum varanlegt kaþarsis.

Aðstandendur

Höfundar og flytjendur: Sigríður Eir Zophoníasardóttir og Vala Höskuldsdóttir

Dramaturg: Egill Andrason

Leikmynd og búningar: Rebekka Ingimundardóttir

Ljósahönunn: Hafliði Emil Barðason

Ljósmyndun: Björgvin Sigurðarson

Grafísk hönnun: Rakel Tómasdóttir

Hljóðhönnun og útsetningar: Brett Smith

Framleiðsla: Hljómsveitin Eva í samstarfi við MurMur productions/Davíð Freyr Þórunnarson

Sýningin er styrkt af Sviðslistasjóði og ListamannalaunumTáknmálstúlkun styrkt af ÖBÍ réttindasamtökum.

TónlistTónleikarLeikhús

Heimild: tix.is