Fara í efni
360expOpin beta
Skrá inn
Aftur í viðburði
Fjölskyldan

Jóladraumar - Íslenski dansflokkurinn

Sunnudagur, 6. desember 2026 · 15:00Borgarleikhúsið · Reykjavík

Vistaðu viðburðinn og við látum þig vita ef dagsetning, tími eða staður breytist.

Sæktu iPhone-appið

Lýsing

Lesa meira

Íslenski Dansflokkurinn

Jóladraumar

Jólaævintýri fyrir börn eftir Ingu Maren Rúnarsdóttur

Jólin nálgast og snjókorn falla. Dimmir dagar faðma okkur og kertaljós vísa leiðina að jólaskapinu. Ung stúlka verður forvitin um hinn dularfulla jólaanda eltir ljósin í leit að sannri merkingu hans. Hún hefur heyrt um mátt jólaandans, hvernig hann fyllir hvert rými og jólastund. Hún veit upp á hár að andann þarf hún að finna, sjálfan sig að kynna og jólaósk sína uppfyllta fá.

Á vegferð sinni hittir hún töfrandi fyrirbæri og frekar fúlan jólakött, hræddan héra og illa lyktandi skötu. Nýju vinirnir og uppáhalds tréð hennar í skóginum hjálpa henni að átta sig á því að jólaandinn býr innra með henni og vinátta, þakklæti og hjálpsemi eru hluti af honum. Við upphaf ferðalagsins veit hún ekki nákvæmlega hvers hún leitar eða í hvers konar formi það gæti verið. En á leið sinni áttar hún sig á því hversu sérstakt það er að hjálpa vini og hvernig góðvild getur fengið hvern sem er til að brosa.

Sagan sýnir krökkum að jólin snúast ekki um efnislegar gjafir og fyrirframgefnar hugmyndir um hvernig jólin eiga að líta út heldur sé þess virði að líta inn á við og finna fyrir hlýjunni í hjartanu á fallegum stundum. Leyndarmál sem er þess virði að deila með forvitnum börnum, sérstaklega á jólunum.

Að sýningum loknum verða haldið jólaball og dansað í kringum lifindi jólatré!

Dansarar: Sara Lind Guðnadóttir, Shota Inoue, Emilía Benedikta Gísladóttir, Harpa Arnardóttir.

FjölskyldanLeikhúsDans

Viðbótarupplýsingar

Búið til með gervigreind

Sjálfvirkar tillögur sem haldið er aðskildum frá opinberum upplýsingum skipuleggjanda.

Jóladraumar is a Christmas adventure for children by Íslenski Dansflokkurinn, written by Inga Maren Rúnarsdóttir. The story follows a young girl's journey to find the true meaning of Christmas spirit, encountering magical beings and learning about friendship and gratitude. The performance takes place at Borgarleikhúsið in Reykjavík and is followed by a Christmas ball and dancing around a live tree.

DansLeikhúsFjölskyldan

Greindir þátttakendur: Íslenski Dansflokkurinn, Sara Lind Guðnadóttir, Shota Inoue, Emilía Benedikta Gísladóttir, Harpa Arnardóttir

Heimild: tix.is