Fara í efni
360expOpin beta
Skrá inn
Aftur í viðburði
Fjölskyldan

Jóladraumar - Íslenski dansflokkurinn

Sunnudagur, 29. nóvember 2026 · 15:00Borgarleikhúsið · Reykjavík

Vistaðu viðburðinn og við látum þig vita ef dagsetning, tími eða staður breytist.

Sæktu iPhone-appið

Lýsing

Lesa meira

Íslenski Dansflokkurinn

Jóladraumar

Jólaævintýri fyrir börn eftir Ingu Maren Rúnarsdóttur

Jólin nálgast og snjókorn falla. Dimmir dagar faðma okkur og kertaljós vísa leiðina að jólaskapinu. Ung stúlka verður forvitin um hinn dularfulla jólaanda eltir ljósin í leit að sannri merkingu hans. Hún hefur heyrt um mátt jólaandans, hvernig hann fyllir hvert rými og jólastund. Hún veit upp á hár að andann þarf hún að finna, sjálfan sig að kynna og jólaósk sína uppfyllta fá.

Á vegferð sinni hittir hún töfrandi fyrirbæri og frekar fúlan jólakött, hræddan héra og illa lyktandi skötu. Nýju vinirnir og uppáhalds tréð hennar í skóginum hjálpa henni að átta sig á því að jólaandinn býr innra með henni og vinátta, þakklæti og hjálpsemi eru hluti af honum. Við upphaf ferðalagsins veit hún ekki nákvæmlega hvers hún leitar eða í hvers konar formi það gæti verið. En á leið sinni áttar hún sig á því hversu sérstakt það er að hjálpa vini og hvernig góðvild getur fengið hvern sem er til að brosa.

Sagan sýnir krökkum að jólin snúast ekki um efnislegar gjafir og fyrirframgefnar hugmyndir um hvernig jólin eiga að líta út heldur sé þess virði að líta inn á við og finna fyrir hlýjunni í hjartanu á fallegum stundum. Leyndarmál sem er þess virði að deila með forvitnum börnum, sérstaklega á jólunum.

Að sýningum loknum verða haldið jólaball og dansað í kringum lifindi jólatré!

Dansarar: Sara Lind Guðnadóttir, Shota Inoue, Emilía Benedikta Gísladóttir, Harpa Arnardóttir.

FjölskyldanLeikhúsDans

Viðbótarupplýsingar

Búið til með gervigreind

Sjálfvirkar tillögur sem haldið er aðskildum frá opinberum upplýsingum skipuleggjanda.

Jóladraumar er jólaævintýri fyrir börn eftir Ingu Maren Rúnarsdóttur í flutningi Íslenska dansflokksins í Borgarleikhúsinu. Ung stúlka eltir ljósin í leit að jólaandanum og hittir m.a. fúlan jólakött, hræddan héra og illa lyktandi skötu. Hún lærir að jólaandinn býr innra með henni og að vinátta, þakklæti og hjálpsemi eru hluti af honum. Að sýningum loknum verður haldið jólaball og dansað í kringum jólatré.

DansSviðslistirLeikhúsFjölskyldan

Greindir þátttakendur: Íslenski dansflokkurinn, Inga Maren Rúnarsdóttir, Sara Lind Guðnadóttir, Shota Inoue, Emilía Benedikta Gísladóttir, Harpa Arnardóttir

Heimild: tix.is