Vitringarnir 3 - 2026
Laugardagur, 12. desember 2026 · 16:00Menningarfélag Akureyrar · Akureyri
Miðar frá
13.999 kr.
Vistaðu viðburðinn og við látum þig vita ef dagsetning, tími eða staður breytist.
Lýsing
Lesa meira
Hof Akureyri
Vitringarnir 3 koma til byggða í desember og færa landsmönnum öllum til sjávar og sveita fruntalega jólaskemmtun að vanda.
Vinirnir og gullbakarnir Eyþór Ingi, Friðrik Ómar og Jógvan Hansen stíga á stokk í nýrri og sprenghlægilegri sýningu sem er uppfull af gríni, grúvi og gæsahúði! (Afsakið. Jógvan getur ekki fallbeygt orðið Gæsahúð rétt.)
Sem fyrr munu óvæntir gestir stíga á svið en tónlistarstjórinn Ingvar Alfreðsson mun stjórna hljómsveit Vitringanna af sinni vestfirsku snilld.
Ath! Sýningin er ekki við hæfi miðaldra kvenna.
Skráðu þig á póstlista Vitringanna til að tryggja þér aðgengi að forsölunni sem verður 28. ágúst kl. 11:00 á vitringarnir3.is Almenn miðasala hefst 1. september kl. 11:00. Ekki láta þig vanta, drífa sig og panta!