Fara í efni
360expOpin beta
Skrá inn
Vitringarnir 3 - 2026
Tónlist

Vitringarnir 3 - 2026

Föstudagur, 11. desember 2026 · 19:00Menningarfélag Akureyrar · Akureyri

Vistaðu viðburðinn og við látum þig vita ef dagsetning, tími eða staður breytist.

Miðasala er ekki í boði sem stendur.

Lýsing

Lesa meira

Hof Akureyri

Vitringarnir 3 koma til byggða í desember og færa landsmönnum öllum til sjávar og sveita fruntalega jólaskemmtun að vanda.

Vinirnir og gullbakarnir Eyþór Ingi, Friðrik Ómar og Jógvan Hansen stíga á stokk í nýrri og sprenghlægilegri sýningu sem er uppfull af gríni, grúvi og gæsahúði! (Afsakið. Jógvan getur ekki fallbeygt orðið Gæsahúð rétt.)

Sem fyrr munu óvæntir gestir stíga á svið en tónlistarstjórinn Ingvar Alfreðsson mun stjórna hljómsveit Vitringanna af sinni vestfirsku snilld.

Ath! Sýningin er ekki við hæfi miðaldra kvenna.

Skráðu þig á póstlista Vitringanna til að tryggja þér aðgengi að forsölunni sem verður 28. ágúst kl. 11:00 á vitringarnir3.is Almenn miðasala hefst 1. september kl. 11:00. Ekki láta þig vanta, drífa sig og panta!

TónlistTónleikar