Komdu um Jólin 2026
Laugardagur, 5. desember 2026 · 17:00Harpa · Reykjavík
Miðar frá
6.900 kr.
Vistaðu viðburðinn og við látum þig vita ef dagsetning, tími eða staður breytist.
Lýsing
Lesa meira
Harpa - Eldborg || 5. desember 2026
KOMDU UM JÓLIN Laugardaginn 5. desember 2026 Eldborg, Harpa Sýningar kl. 17:00 og 21:00
Miðasala hefst fimmtudaginn 17. september kl. 10:00.
Komdu um jólin í Eldborg – glæsilegt jóla- og partýkvöld þar sem nokkrar af þekktustu röddum landsins koma saman og flytja jólalögin sem við þekkjum og elskum, ásamt stórum lögum sem koma okkur í rétta hátíðarskapið.
Á svið stíga:
Birgitta Haukdal Stefán Hilmarsson Ragga Gísla Klara Elías Klara Einars Magni Gunnar Óla Vignir Snær
Með þeim verður einvala lið tónlistarfólks og öllu verður tjaldað til í Eldborg – stór hljómur, ljós, gleði og glæsileg umgjörð. Komdu um jólin er hugsað sem meira en hefðbundnir jólatónleikar. Hér mætast jólin og áramótastemningin í einni stórri hátíðarveislu; klassísk jólalög, óvæntar útgáfur, dúettar og lög sem einfaldlega kalla á að maður klæði sig aðeins upp, mæti með góðu fólki og geri sér kvöld úr þessu.
Tvær sýningar verða í Eldborg laugardaginn 5. desember: Fyrri sýning – kl. 17:00 Tilvalin fyrir þá sem vilja hefja desemberkvöldið með glæsilegri jólastund í Hörpu. Seinni sýning – kl. 21:00 Jólin mæta laugardagskvöldinu – meiri kvöld- og partýstemning og tilvalið að gera heila kvöldstund úr heimsókninni í Hörpu.