Fara í efni
360expOpin beta
Skrá inn
Una Torfa í jólafötunum
Tónlist

Una Torfa í jólafötunum

Föstudagur, 18. desember 2026 · 20:00Salurinn · Kópavogur

Skoða upprunalega vefinnFrá 6.990 kr.

Vistaðu viðburðinn og við látum þig vita ef dagsetning, tími eða staður breytist.

Lýsing

Lesa meira

Salurinn | 18.desember 2026

Una Torfa kíkir í Salinn í jólaskapi! Á notalegum tónleikum mun Una flytja blöndu af sínum eigin lögum og jólalögum sem henni þykir vænt um. Hafsteinn Þráinsson verður með Unu á sviðinu og leikur á gítar.

Í jólastressinu er ekkert betra en að gefa sér góða kvöldstund til þess að slaka á og rifja upp friðinn sem gleymist oft í undirbúningi jólanna. Una ætlar að skapa friðsælt og ljúft andrúmsloft eins og henni einni er lagið.

Ímyndaðu þér heitt súkkulaði, heitt súkkulaði með eins miklum þeyttum rjóma og þig lystir, heitt súkkulaði og tvö piparkökuhjörtu á undirskál. Finnurðu hlýjuna? Svona mun þér líða þegar þú kemur að sjá Unu Torfa í jólafötunum í Salnum þann 18.desember.

TónlistTónleikar

Hvar

Salurinn

Hamraborg 6, 200 Kópavogur, Kópavogur

Skoða alla viðburði á þessum stað