Fara í efni
360expOpin beta
Skrá inn
Aftur í viðburði
Dans

Hnotubrjóturinn: Symphony Of Lights - Grand Kyiv Ballet

Laugardagur, 16. janúar 2027 · 19:00Harpa · Reykjavík

Vistaðu viðburðinn og við látum þig vita ef dagsetning, tími eða staður breytist.

Sæktu iPhone-appið

Lýsing

Lesa meira

Harpa - Eldborg || 17. janúar 2027

Hnotubrjóturinn: Symphony of Lights er er ný og stórbrotin sjónræn túlkun á hinni sígildu jólasögu.

Við ódauðlega tónlist Tsjajkovskíjs varðveitir sýningin fegurð og hefðir klassíska ballettsins en opnar um leið nýjan heim ljóss, lita og leikhústöfra. Glitrandi búningar, nýstárleg ljósahönnun, glæsileg danssmíð og alþjóðlegir ballettdansarar gera þessa kunnuglegu sögu að ógleymanlegri sjónrænni upplifun.

Symphony of Lights kemur ekki í stað hins klassíska Hnotubrjóts heldur gefur honum nýja vídd. Hefðbundin danslist og tónlistin eru áfram hjarta sýningarinnar en nútímaleg ljósatækni magnar töfrana á sviðinu.

Frá hlýju jólahátíðarinnar inn í draumkenndan heim snjós, leikfanga og ævintýra verður hvert atriði að lifandi listaverki þar sem hefð, hreyfing, tónlist og ljós renna saman.

Sýningin er verk Grand Kyiv Ballet og endurspeglar þá sýn dansflokksins að varðveita ríka hefð klassíska ballettsins en finna um leið nýjar leiðir til að heilla áhorfendur samtímans og veita þeim innblástur.

Upplifðu Hnotubrjótinn sem þú þekkir og elskar, en í alveg nýju ljósi.

Heimild: tix.is