Fara í efni
360expOpin beta
Skrá inn
Aftur í viðburði
Tónlist

Bjarni Ingólfsson Kvartett m. Óskari Gúðjonssyni

Miðvikudagur, 16. desember 2026 · 20:00Hannesarholt · Reykjavík

Vistaðu viðburðinn og við látum þig vita ef dagsetning, tími eða staður breytist.

Sæktu iPhone-appið

Lýsing

Lesa meira

Hannesarholt || 16. desember

Bjarni Ingólfsson kvartett skipaður Bjarna Ingólfssyni á gítar, Óskari Guðjónssyni á saxófón, Matthíasi Hemstock á trommum og Nico Moreaux á bassa bjóða upp á notalega kvöldstund í Hannesarholti þar sem þeir munu flytja úrval af jazzperlum frá Amerísku söngbókinni og stórskáldum jazzsögunnar sem eru í sérlegu uppáhaldi hjá þeim.

Bjarni Már Ingólfsson gítarleikari f. 1997 sem nýverið lauk við mastergráðu sinni í tónlist frá Norges Musikkhøgskole í Osló (NMH) hefur á síðustu árum hlotið athygli bæði hérlendis og á norðurlöndum sem hljóðfæraleikari og tónskáld. Bjarni hefur staðið á bakvið fjöldan allan af verkefnum sem hafa komið fram á vettvöngum stórum á smáum bæði á Íslandi og víðsvegar um norðurlöndin.

Heimild: tix.is