Jólatónleikar Bertu og Svans í Hannesarholti
Laugardagur, 5. desember 2026 · 16:00Hannesarholt · Reykjavík
Miðar frá
4.900 kr.
Vistaðu viðburðinn og við látum þig vita ef dagsetning, tími eða staður breytist.
Lýsing
Lesa meira
Hannesarholt || 5. desember
Jólatónleikar Bertu og Svans í Hannesarholti
Söngkonan Berta Dröfn Ómarsdóttir og gítarleikarinn Svanur Vilbergsson bjóða til notalegrar jólastundar í Hannesarholti laugardaginn 5. desember.
Berta er mikið jólabarn og hefur í gegnum árin tekist að draga Svan æ lengra inn í jólastemninguna. Afraksturinn er fjölbreytt og skemmtileg efnisskrá þar sem bæði þekkt og minna þekkt jólalög fá að hljóma.
Á tónleikunum verður ferðast milli landa og tungumála og meðal annars flutt ítölsk, spænsk og ensk jólalög, auk kunnuglegra perla á borð við Hvít jól og Once Upon a December.
Berta og Svanur hafa starfað saman um árabil og leggja sig fram við að finna lög sem henta vel fyrir rödd og gítar – hvort sem þau koma úr klassíkinni eða þjóðlagaarfinum.
Tónleikarnir verða hlýleg jólastund í fallegu umhverfi Hannesarholts.