Fara í efni
360expOpin beta
Skrá inn
Aftur í viðburði
Tónlist

Endurómur norðursins - North Atlantic Brass

Þriðjudagur, 1. desember 2026 · 19:30Harpa · Reykjavík

Vistaðu viðburðinn og við látum þig vita ef dagsetning, tími eða staður breytist.

Sæktu iPhone-appið

Flytjendur

Lýsing

Lesa meira

Harpa - Norðurljós || 1. desember 2026

Á þessum tónleikum er farið í ferðalag um tónlistarsögu Norðurlandanna, þar sem gömul þjóðlög og ný tónlist mætast. Á efnisskránni eru norræn þjóðlög sem hafa fylgt fólki kynslóð fram af kynslóð, ásamt nýjum verkum sem sækja innblástur í sömu hefð. Tvö verk verða frumflutt á heimsvísu. Annað er Ballarbyxn eftir Þórð Hallgrímsson, sem samið var sérstaklega fyrir North Atlantic Brass, og hitt er For Simon eftir Nick Martin. Einnig hljóma Brasskvintett nr. 1 eftir Vagn Holmboe og Þrír norskir dansar eftir Mogens Andresen. North Atlantic Brass skipa Gunnar Kristinn Óskarsson, Frederik Pehrsson, Erling Róbert Eydal, Gunnar Helgason og August Schieldrop. Kvintettinn hefur hlotið alþjóðleg verðlaun og viðurkenningar, og meðlimir hans leika með mörgum af fremstu hljómsveitum Norðurlanda.

Hvort sem þú þekkir lögin eða heyrir þau nú í fyrsta sinn, bíður þín hlý og fjölbreytt tónlistarupplifun. Endurómur norðursins er óður til norrænnar tónlistarhefðar og þeirra sem flytja hana inn í nýja tíma.

Lengd: um 1 klst. og 50 mín, með 25 mínútna hléi. Tónleikarnir eru styrktir af Tónlistarsjóði, Ýli og Art Music Denmark

Viðbótarupplýsingar

Búið til með gervigreind

Sjálfvirkar tillögur sem haldið er aðskildum frá opinberum upplýsingum skipuleggjanda.

North Atlantic Brass flytur norræn þjóðlög og ný verk í Norðurljósum í Hörpu 1. desember 2026. Tvö verk verða frumflutt á heimsvísu: Ballarbyxn eftir Þórð Hallgrímsson og For Simon eftir Nick Martin. Einnig hljóma Brasskvintett nr. 1 eftir Vagn Holmboe og Þrír norskir dansar eftir Mogens Andresen. Lengd um 1 klst. og 50 mín. með 25 mínútna hléi.

TónlistTónleikar

Heimild: tix.is