Fara í efni
360expOpin beta
Skrá inn
Aftur í viðburði
Útkall - Leiksýning: Flugslysið á Sri Lanka
Leikhús

Útkall - Leiksýning: Flugslysið á Sri Lanka

Miðvikudagur, 9. desember 2026 · 20:00Harpa · Reykjavík

Skoða upprunalega vefinnFrá 7.900 kr.

Vistaðu viðburðinn og við látum þig vita ef dagsetning, tími eða staður breytist.

Lýsing

Lesa meira

Forsýning

Einn vinsælasti bókaflokkur Íslands verður að leiksýningu.

Einn myrkasti kafli í íslenskri flugsögu.

Þann 15. nóvember 1978 brotlenti flugvél Flugleiða, Leifur Eiríksson, við flugvöllinn í Kólombó á Sri Lanka. Af þeim 262 manns sem voru um borð komust einungis 79 lífs af, sem gerði brotlendinguna að fjórða mesta flugslysi sögunnar á þeim tíma. Af þeim sem komust af voru fimm Íslendingar.

Aðdraganda slyssins, björgunaraðgerðunum og eftirmálunum hafa verið gerð skil í bók Óttars Sveinssonar, Útkall - Leifur Eiríksson brotlendir. Bókin byggir á viðtölum við eftirlifendur slyssins, aðstandendur og aðra flugáhafnarstarfsmenn sem voru á flugvellinum þegar brotlendingin átti sér stað. Nú verður sagan að leiksýningu þar sem fimm leikarar munu setja sig í spor íslensku eftirlifendanna og gera sögu þeirra skil á heiðarlegan, nærgætinn en átakanlegan hátt.

Ef það er eitt sem áföll eins og flugslysið á Sri Lanka hafa sýnt okkur, er að á sorgarstundum eiga Íslendingar eina sál þegar á reynir. Þá eykst samlyndi og styrkur eflist.

Leikgerðin er unnin af Fjölni Gíslasyni, leikara og Magnúsi Thorlacius, leikstjóra. Fjölnir hefur verið áberandi í leikhússenunni síðustu ár en hann hefur farið með eftirminnileg hlutverk m.a. í Kannibalen, Undir, Carmen og í Jónsmessunæturdraumi, svo fátt eitt sé nefnt. Magnús hefur einnig sett mark sitt á leikhússenuna síðustu ár, og lýkur meistaranámi í leikstjórn við LAMDA í London núna í haust. Hann hlaut töluverða athygli fyrir leiksýninguna Skeljar sem sýnd var í Ásmundarsal þarsíðasta vetur sem var tilnefnd til Grímunnar sem leikrit ársins og hefur nú verið gefin út á bók.

—

Leikstjórn: Magnús Thorlacius

Leikgerð: Fjölnir Gíslason og Magnús Thorlacius

Byggt á bók eftir: Óttar Sveinsson

Leikarar: Berglind Halla Elísdóttir, Fjölnir Gíslason, Kristín Eiríksdóttir, Ellen Margrét Bæhrenz og Ýr Aimée Gautadóttir Presburg

Tónlist- og hljóðmynd: Anna Róshildur Benediktsdóttir

Ljósahönnun: Fjölnir Gíslason og Magnús Thorlacius

Framleiðsla: SPOTLIGHT

Hvar

Harpa

Austurbakka 2, 101 Reykjavík, Reykjavík

Skoða alla viðburði á þessum stað