Fara í efni
360expOpin beta
Skrá inn
Bríet, blómin og Hannes
Leikhús

Bríet, blómin og Hannes

Þriðjudagur, 13. október 2026 · 13:30Hannesarholt · Reykjavík

Skoða upprunalega vefinnFrá 3.000 kr.

Vistaðu viðburðinn og við látum þig vita ef dagsetning, tími eða staður breytist.

Lýsing

Lesa meira

Hannesarholt || 13. október

Dagskráin „Bríet, blómin og Hannes“ var flutt í Hannesarholti - Hljóðbergi 27. september til heiðurs Bríeti Bjarnhéðinsdóttur, kvenréttindakonu, blaðamanni og ritstjóra Kvennablaðsins á afmælisdegi hennar, og verður nú endurtekin í október. Fjallað verður um samstarf Hannesar Hafstein, fyrsta ráðherra Íslands og Bríetar, ólíka æsku þeirra og kjör og hvernig lífsþræðir þeirra spunnust saman, meðan bæði lifðu. Samstarf þeirra hafði mikil áhrif á þróun kvenréttinda hér á landi. Sá sögulegi sannleikur má ekki gleymast.

En hvaða blóm eru þetta ? - Það færðu að vita ef þú mætir í Hannesarholt þann 27. september.

Sýningin er samvinnuverkefni Hannesarholts og Leikhúslistakvenna 50 +

Dagskráin er um eina klst.

Þáttakendur

Ásdís Skúladóttir leikstjóri, skrifaði handritið ásamt hópnum

Edda Þórarinsdóttir leikkona

Helga E. Jónsdóttir leikkona

Þórey Sigþórsdóttir leikkona

Laufey Sigurðardóttir fiðluleikari

Hvar

Hannesarholt

Grundarstíg 10, 101 Reykjavík, Reykjavík

Skoða alla viðburði á þessum stað