Fara í efni
360expOpin beta
Skrá inn
MIMRA í Hannesarholti
Tónlist

MIMRA í Hannesarholti

Fimmtudagur, 15. október 2026 · 20:00Hannesarholt · Reykjavík

Skoða upprunalega vefinnFrá 3.900 kr.

Vistaðu viðburðinn og við látum þig vita ef dagsetning, tími eða staður breytist.

Lýsing

Lesa meira

Hannesarholt || 15. október

Tónlistarkonan MIMRA stígur á stokk ásamt hljómsveit á tónleikum í Hannesarholti fimmtudagskvöldið 15.október. Að þessu sinni kemur söngkonan fram með einvala liði tónlistarkvenna sem hver og ein hafa skapað sér nafn innan jazz og poppsenu landsins. Hljómsveitina skipa Anna Gréta Sigurðardóttir á píanó, Ingibjörg Elsa Turchi á bassa og Sólrún Mjöll Kjartansdóttir á trommur. Langt er síðan MIMRA hefur komið fram á tónleikum með eigið efni og er því um einstakan viðburð að ræða sem fæstir ættu að láta fram hjá sér fara.

Tónlist MIMRU fer víða og má kalla art popp eða „alternative“ þjóðlagapopp. Hljóðheiminum hefur verið lýst sem einstaklega aðlaðandi, fáguðum og háleitum. Hann er tilfinningaríkur og ljóðrænn með einstaka dýpt og í víðáttumiklu rými. Metnaðarfull og áhugaverð blanda af óhefðbundinni þjóðlagatónlist með áhrifum raftónlistar, djass og daðri við kvikmyndatónlist. Samofið og sameinað í eina heild.
MIMRA er hugarfóstur söngkonunnar og lagahöfundarins Maríu Magnúsdóttur. MIMRA steig fram á sjónarsviðið með útgáfu plötunnar Sinking Island árið 2017 sem hún tók upp og hljóðblandaði samhliða námi sínu í Goldsmiths University of London. Finding Place kom svo út árið 2022 með þróaðari tónsköpun og heildarmynd. Síðan þá hefur MIMRA haldið áfram að heilla hlustendur með tónlist sinni.

Hvar

Hannesarholt

Grundarstíg 10, 101 Reykjavík, Reykjavík

Skoða alla viðburði á þessum stað