Fara í efni
360expOpin beta
Skrá inn
Raddir að austan
Tónlist

Raddir að austan

Miðvikudagur, 14. október 2026 · 20:00Hannesarholt · Reykjavík

Skoða upprunalega vefinnFrá 3.900 kr.

Vistaðu viðburðinn og við látum þig vita ef dagsetning, tími eða staður breytist.

Lýsing

Lesa meira

Hannesarholt || 14. október

Einstök tónlistarupplifun í Hannesarholti þar sem áheyrendum er boðið í ferðalag um menningarheima austur-Evrópu og Anatólíu. Þrjú ólík en áhrifamikil verk munu hljóma en á efnisskránni eru sellósónata eftir Dmitri Shostakovich, sellósónata eftir Nikolai Myaskovsky og verkið Four Cities eftir Fazıl Say.

Í sellósónötu Shostakovich skiptast á angurværð og kaldhæðni, dramatískar tilfinningar sem eru einkennandi fyrir tónskáldið. Myaskovsky leikur sér að hlýjum og rómantískumi tónum, þar sem sellóið fær að njóta sín í ríkum og ljóðrænum línum. Four Cities eftir Fazıl Say er hins vegar litrík og nútímaleg tónsmíð sem sækir innblástur í ólíkar borgir og menningarheima, með rytmískum og kraftmiklum þáttum. Þetta verður kvöld þar sem fortíð og nútíð mætast, með tónum sem snerta hjartað og kveikja í ímyndunaraflinu.

$50

TónlistTónleikar

Hvar

Hannesarholt

Grundarstíg 10, 101 Reykjavík, Reykjavík

Skoða alla viðburði á þessum stað