Fara í efni
360expOpin beta
Skrá inn
Falstaff - Óperan
Tónlist

Falstaff - Óperan

Föstudagur, 12. mars 2027 · 19:30Harpa · Reykjavík

Skoða upprunalega vefinnFrá 6.900 kr.

Vistaðu viðburðinn og við látum þig vita ef dagsetning, tími eða staður breytist.

Lýsing

Lesa meira

2. sýning

Fyrsta stóra uppfærsla hinnar nýju Óperu verður gamanóperan Falstaff eftir Giuseppe Verdi og er það í fyrsta sinn sem þetta meistaraverk er sýnt á Íslandi. Verkið er byggt á persónum úr leikritum eftir William Shakespeare og fjallar um spaugilegar tilraunir aðalsmannsins Falstaffs til að draga tvær efnaðar konur á tálar og hafa síðan fé af eiginmönnum þeirra. Þær sjá fljótt í gegnum blekkingar kauða og taka til sinna ráða. Falstaff er fjörug og leiftrandi ópera um breyskleika og blekkingar, afbrýðisemi og hégómagirnd.

„Þá var ég grannur, þá var allt í blóma.
Þetta var áður en ég kynntist rjóma.“

Ólafur Kjartan Sigurðarson fer með titilhlutverkið, en hann er einn ástsælasti söngvari þjóðarinnar og hefur um árabil farið með burðarhlutverk á óperusviðum víða um heim. Í öðrum hlutverkum er fastur hópur söngvara hinnar nýju Óperu ásamt fleiri framúrskarandi söngvurum og kór. Brynhildur Guðjónsdóttir leikstýrir og hljómsveitarstjóri er Alexander Joel.

Óperan verður flutt á íslensku í nýrri þýðingu eftir Sólveigu Sigurðardóttur og Þórhall Auð Helgason, en þýðingar þeirra fyrir óperusýningar Óðs hafa vakið mikla athygli. Sýningin er sett upp í Eldborg í Hörpu í samstarfi við Sinfóníuhljómsveit Íslands og mun fullskipuð hljómsveit sjá um hljóðfæraleik.

TónlistSviðslistirLeikhús

Hvar

Harpa

Austurbakka 2, 101 Reykjavík, Reykjavík

Skoða alla viðburði á þessum stað