Fara í efni
360expOpin beta
Skrá inn
Tónlist

The Chicago Blues Brothers

Föstudagur, 22. október 2027 · 19:30Harpa · Reykjavík

Vistaðu viðburðinn og við látum þig vita ef dagsetning, tími eða staður breytist.

Sæktu iPhone-appið

Lýsing

Lesa meira

Ein stærsta og vinsælasta Blues Brothers sýningin er á leiðinni til Reykjavíkur, aðeins þetta eina kvöld.

Sýningin hefur verið sýnd í Adelphi og Savoy leikhúsunum í Lundúnum, en rúm 45 ár eru síðan Blues Brothers ruddust fyrst fram á sjónarsviðið. The Chicago Blues Brothers eru fimmfaldir National Tribute verðlaunahafar og mæta í Eldborg með alla smellina: Everybody Needs Somebody, Soul Man, Shake a Tail Feather, Think, Gimme Some Lovin', Sweet Home Chicago, auk þess sem búast má við óvæntum uppákomum.

Þetta er kraftmikil tónlistarsýning, ómótstæðileg blanda af blús, soul og rokki, með heimsklassa hljómsveit, blússandi blásurum og fjórum sjóðheitum söngvurum. Með öðrum orðum: Ógleymanleg kvöldstund í Eldborg.

Sjáðu kynningarmyndbandið hér: https://www.youtube.com/watch?v=LbjhlNAluhM

Áætluð lengd: um 2 klst. og 20 mínútur, með hléi.

TónlistTónleikar

Heimild: tix.is