Fara í efni
360expOpin beta
Skrá inn
Fjölskyldan

Karíus og Baktus

Laugardagur, 5. desember 2026 · 13:00Harpa · Reykjavík

Vistaðu viðburðinn og við látum þig vita ef dagsetning, tími eða staður breytist.

Sæktu iPhone-appið

Flytjendur

Lýsing

Lesa meira

Harpa || Kaldalón

Karíus og Baktus

Tanntröllin Karíus og Baktus lifa sannkölluðu sældarlífi í munninum á drengnum Jens. Enda notar hann tannburstann lítið sem ekkert og vill helst gæða sér á allskyns sætindum sem Karíus og Baktus kunna svo sannarlega að meta. Félagarnir hreiðra um sig í tönnunum og ræða framtíðardrauma um byggingaframkvæmdir í munninum. En þegar þeir gerast of aðgangsharðir verður Jens að fara til tannlæknis sem setur framkvæmdirnar í uppnám og félagarnir þurfa að leita á nýjar slóðir.

Karíus og Baktus er sígilt ævintýri eftir Thorbjörn Egner. Sagan kom fyrst út á bók árið 1949 og síðan þá hafa þessir litlu prakkarar notið mikilla vinsælda meðal barna víða um heiminn.

Nú má sjá þessa sígildu prakkara í fallegu leikhúsi sem sett hefur verið upp í Kaldalóni í Hörpu en það er miklu skemmtilegra að kíkja á þá þar en að hafa þá í munninum á sér. Karíus og Baktus er hress og skemmtileg sýning fyrir alla aldurshópa og er tilvalin fyrir unga krakka sem eru að kynnast töfrum leikhússins í fyrsta skipti.

Sýningin er um 45 mínútur að lengd og án hlés.

Leikarar: Snædís Lilja Ingadóttir og Sigríður Ásta Olgeirsdóttir

Leikstjórn: Sara Marti og Agnes Wild
Leikmynd og búningar: Steinunn Marta Önnudóttir
Tónlist: Stefán Örn Gunnlaugsson
Myndband: Steinar Júlíusson
Leikmunir: Eva Björg Harðardóttir
Sýningarkeyrsla: Óðinn Ragnarsson
Framleiðslustjórn: Jón Þ. Kristjansson

Viðbótarupplýsingar

Búið til með gervigreind

Sjálfvirkar tillögur sem haldið er aðskildum frá opinberum upplýsingum skipuleggjanda.

Leiksýning í Kaldalóni í Hörpu byggð á sígildu ævintýri Thorbjörns Egner um tanntröllin Karíus og Baktus sem búa í munni drengsins Jens þar til hann fer til tannlæknis. Sýningin er fyrir alla aldurshópa og hentar ungum krökkum sem eru að kynnast leikhúsinu. Hún er um 45 mínútur án hlés. Leikarar eru Snædís Lilja Ingadóttir og Sigríður Ásta Olgeirsdóttir. Leikstjórn er í höndum Söru Marti og Agnesar Wild.

LeikhúsSviðslistirFjölskyldan

Heimild: tix.is