Fara í efni
360expOpin beta
Skrá inn
Aftur í viðburði
Tónlist

Jónsson, Hemstock, Gröndal kvartett - útgáfutónleikar - Múlinn Jazzklúbbur

Miðvikudagur, 2. desember 2026 · 20:00Harpa · Reykjavík

Vistaðu viðburðinn og við látum þig vita ef dagsetning, tími eða staður breytist.

Sæktu iPhone-appið

Flytjendur

Lýsing

Lesa meira

Harpa - Björtuloft || 2. desember 2026

Haukur Gröndal, saxófónn
Ólafur Jónsson, saxófónn
Þorgrímur Jónsson, bassi
Matthías MD Hemstock, trommur

Kvartettinn heldur útgáfutónleika í tilefni af útkomu nýrrar plötu sveitarinnar. Kvartettinn sem er leiddur af bræðrunum Ólafi og Þorgrími Jónssonum flytur frumsamda tónlist eftir meðlimi sveitarinnar. Tónlistin sækir í hefð jazzins en horfir jafnframt fram á við. Um er að ræða framsækinn jazz þar sem fallegar og lagrænar tónsmíðar eru í forgrunni þar sem flytjendurnir fá jafnframt mikið rými til að kanna ólík blæbrigði og möguleika spuna. Tónlistin spannar þannig breitt svið, allt frá frjálsum og orkumiklum spuna yfir í íhugaðar og næmar tónsmíðar þar sem samspil hljóðfæraleikaranna fær að njóta sín. Á tónleikunum verður nýja platan í brennidepli, en jafnframt gefst tækifæri til að upplifa tónlistina í lifandi flutningi, þar sem hún getur tekið á sig nýja mynd og þróast í samspili flytjendanna. Kvartettinn býður upp á tónleika þar sem skapandi spuni og framsækin nálgun mætast í lifandi og fjölbreyttum tónlistarheimi.

Viðbótarupplýsingar

Búið til með gervigreind

Sjálfvirkar tillögur sem haldið er aðskildum frá opinberum upplýsingum skipuleggjanda.

Jónsson, Hemstock, Gröndal kvartett heldur útgáfutónleika í Björtuloftum í Hörpu 2. desember 2026 í tilefni af nýrri plötu. Kvartettinn, leiddur af bræðrunum Ólafi og Þorgrími Jónssonum, flytur frumsamda framsækna jazztónlist þar sem lagrænar tónsmíðar og spuni mætast. Flytjendur: Haukur Gröndal og Ólafur Jónsson (saxófónn), Þorgrímur Jónsson (bassi) og Matthías MD Hemstock (trommur).

TónlistTónleikar

Heimild: tix.is