Opnar æfingar Sinfóníuhljómsveitar Íslands
Fimmtudagur, 15. apríl 2027 · 10:00Harpa · Reykjavík
Miðar frá
2.250 kr.
Vistaðu viðburðinn og við látum þig vita ef dagsetning, tími eða staður breytist.
Lýsing
Lesa meira
Sinfóníuhljómsveit Íslands || 2026-27
Sinfóníuhljómsveitin opnar dyrnar að lokaæfingum á tónleikadegi fyrir flesta áskriftartónleika í gulri, rauðri og grænni tónleikaröð. Hægt er að kaupa aðgang að æfingunum í miðasölu Hörpu og á sinfonia.is. Lokaæfingin hefst kl. 10:00 en aðgangur er takmarkaður við ákveðin sæti í Eldborg á 1. svölum. Þetta er tilvalið tækifæri til að dýpka upplifun og skilning á tónlistinni sem flutt verður á tónleikum um kvöldið.
Tekið skal fram að æfingarnar eru ekki tónleikar, heldur vinnuæfingar og dagskrá þeirra því ekki endilega í fullu samræmi við tónleika kvöldsins.