Gullöld sveiflunnar - Stórsveit Reykjavíkur
Sunnudagur, 10. janúar 2027 · 20:00Harpa · Reykjavík
Miðar frá
4.990 kr.
Vistaðu viðburðinn og við látum þig vita ef dagsetning, tími eða staður breytist.
Lýsing
Lesa meira
Harpa - Eldborg || 10. janúar 2027
Stórsveit Reykjavíkur heldur sína árvissu og vinsælu nýárstónleika í Eldborg. Tónleikarnir eru helgaðir swingtímabilinu 1930-50, þegar stórsveitir réðu ríkjum í tónlistarheiminum og stjórnendur, söngvarar og einleikarar voru poppstjörnur síns tíma. Ný og spennandi efnisskrá á hverju ári úr nótnabókum stórsveita Glenn Miller, Benny Goodman, Duke Ellington, Count Basie, Woody Herman, Tommy Dorsey og fleiri. Einungis eru fluttar upprunalegar útsetningar og ekkert er sparað til að gera þennan atburð sem glæsilegastan. Gestasöngvarar ársins eru þau Salka Sól og Jógvan Hansen. Sigurður Flosason stjórnar og kynnir.