Fara í efni
360expOpin beta
Skrá inn
Aftur í viðburði
Tónlist

Söngbók Gunna Þórðar - Sinfóníuhljómsveit Íslands

Föstudagur, 22. janúar 2027 · 20:00Harpa · Reykjavík

Vistaðu viðburðinn og við látum þig vita ef dagsetning, tími eða staður breytist.

Sæktu iPhone-appið

Lýsing

Lesa meira

AUKATÓNLEIKAR

Nokkrir af okkar fremstu söngvurum stíga á svið með Sinfóníuhljómsveit Íslands á einstökum tónleikum í Eldborg og flytja helstu dægurperlur Gunnars Þórðarsonar sem hafa öðlast sérstakan sess í hugum og hjörtum Íslendinga. Söngbókin er sérstaklega útsett fyrir sinfóníuhljómsveit og söngvara og má þar nefna lög eins og Þitt fyrsta bros, Minning þín, Vetrarsól, Ljúfa langa sumar, Þú og ég, Bláu augun þín, Gaggó vest og fleiri perlur meistarans.

Ferill Gunnars Þórðarsonar var einstakur og eftir hann liggja yfir fimm hundruð lög sem þjóðin hefur gert að sínum í gegnum árin. Hann samdi einnig fjölda verka fyrir sinfóníuhljómsveit, kóra og söngvara og ber þar hæst óperuna Ragnheiður. Það er því engum ofsögum sagt að Gunnar sé í hópi allra áhrifamestu listamanna íslenskrar tónlistarsögu.

Söngvarar á tónleikunum eru Árný Margrét, Jón Jónsson, Katrín Halldóra, Páll Óskar, Ragnheiður Gröndal og Valdimar Guðmundsson en um tónsprotann heldur Hjörtur Páll Eggertsson. Með slíkt úrvalslið listamanna á sviðinu í Eldborg er óhætt að lofa tilfinningaþrungnum og kröftugum tónleikum.

Hljómsveitarstjóri
Hjörtur Páll Eggertsson

Söngvarar
Árný Margrét Sævarsdóttir
Jón Jónsson
Katrín Halldóra Sigurðardóttir
Páll Óskar Hjálmtýsson
Ragnheiður Gröndal
Valdimar Guðmundsson

Útsetjarar
Gunnar Þórðarson
Haraldur Vignir Sveinbjörnsson
Hrafnkell Orri Egilsson
Szymon Kura

Efnisskrá
Gunnar Þórðarson: Nocturne, Vesturgata, Ef harpa þín þagnar, Bláu augun þín, Minning þín, Ljúfa langa sumar, Þú og ég, Ástarsæla, Þitt fyrsta bros, Forleikur úr óperunni Ragnheiði, Tilbrigði við fegurð, Lífsgleði, Við Reykjavíkurtjörn, Við saman, Er hann birtist, Himinn og jörð, Húsin í bænum, Gaggó vest, Vetrarsól

TónlistTónleikar

Heimild: tix.is