Fara í efni
360expOpin beta
Skrá inn
Aftur í viðburði
Jólapartý Skoppu og Skrítlu í Hörpu
Fjölskyldan

Jólapartý Skoppu og Skrítlu í Hörpu

Sunnudagur, 20. desember 2026 · 16:00Harpa · Reykjavík

Skoða upprunalega vefinnFrá 5.990 kr.

Vistaðu viðburðinn og við látum þig vita ef dagsetning, tími eða staður breytist.

Lýsing

Lesa meira

Harpa - Eldborg ||

Tónleikasýning Skoppu og Skrítlu snýr aftur!

Jólapartý Skoppu og Skrítlu sem sló í gegn á síðasta ári verður nú í Hörpu og Hofi á Akureyri. Öll fjölskyldan kemst í jólaskap á þessari glaðværu og hjartahlýju tónleikasýningu þar sem stuð og stemning mun ráða ríkjum! Með sér á svið fá þær glæsilega gestasöngvara sem setja sannkallaðan stjörnublæ á sýninguna – og tónlistin mun hreyfa við öllum, bæði litlum og stórum! Komdu með Skoppu og Skrítlu í fjörugt og spennandi jólapartý þar sem tónlist, gleði og töfrar jólanna fylla hjörtun!

Frábær sýning fyrir alla fjölskylduna!

Með helstu hlutverk fara:
Linda Ásgeirsdóttir
Hrefna Hallgrímsdóttir
Vigdís Gunnarsdóttir
Viktor Már Bjarnason
Páll Óskar Hjálmtýsson
Salka Sól Eyfeld
ásamt 12 syngjandi og dansandi glöðum börnum.

Sýningin er 55 mín.

FjölskyldanLeikhús

Hvar

Harpa

Austurbakka 2, 101 Reykjavík, Reykjavík

Skoða alla viðburði á þessum stað