Fara í efni
360expOpin beta
Skrá inn
Aftur í viðburði
Jólatímavélin - ný tónleikaupplifun fyrir börn og fjölskyldur
Tónlist

Jólatímavélin - ný tónleikaupplifun fyrir börn og fjölskyldur

Sunnudagur, 6. desember 2026 · 16:00Salurinn · Kópavogur

Skoða upprunalega vefinnFrá 4.900 kr.

Vistaðu viðburðinn og við látum þig vita ef dagsetning, tími eða staður breytist.

Lýsing

Lesa meira

Salurinn | 6.desember

„Svona’ eru jólin“, orti skáldið en um hvaða jól var ort? Jólin sem langamma og langafi upplifðu voru allt öðruvísi en jólin í dag og svo eru hátíðarhöldin fjölbreytt um allan heiminn. Jólatímavélin er ný tónleikaupplifun fyrir börn og fjölskyldur þar sem tónlist liðinna jóla og skemmtilegar sögur fléttast saman. Tilvalin leið til að vekja áhuga ungra huga á fjölbreytileika tónlistarinnar en á tónleikunum fáum við m.a. að heyra klassík, þjóðlagatónlist, gömul dægurlög og ferskar útsetningar af nýrri tónlist.

Kvartett Jólatímavélarinnar er skipaður einvalaliði íslenskra söngvara sem öll eru félagar í sönghópunum Kyrju og Yrkju. Þau munu leiða alla fjölskylduna í hljómfagurt tímaferðalag um jól, nú og fyrr; í torfbæjum er leikið á langspil við kertaljós, fjarri landsteinum kynnumst við dramatíkinni í Hnotubrjót Tschaikovskys og svo endum við aftur þar sem við lögðum af stað, á Íslandi árið 2026 - rétt áður en jólin nú og hér ganga í garð.

Samferða þessu verður kafað í hljóma, yfirtónasöng og mátt tónlistar til að flytja okkur í annan heim. Þessir skemmtilegu tónleikar eru tilvalin leið til að bjóða jólin velkomin í faðmi fjölskyldunnar. Hver veit nema mandarínur verði í boði?

Kvartett Jólatímavélarinnar eru Sólveig Sigurðardóttir (sópran), Sara Grímsdóttir (alt), Þórhallur Auður Helgason (tenór) og Philip Barkhudarov (bassi). Kvartettinn spratt upp úr sönghópunum Kyrju og Yrkju en Philip og Sólveig eru listrænir stjórnendur þeirra. Öll eru þau atvinnusöngvarar og hafa áralanga reynslu af margvíslegum kórsöng og óperuflutningi en brenna einnig fyrir það að miðla tónlist til áhorfenda á hrífandi, nærtækan hátt.

Viðburðurinn er um klukkutstund án hlés.

TónlistFjölskyldanTónleikar

Hvar

Salurinn

Hamraborg 6, 200 Kópavogur, Kópavogur

Skoða alla viðburði á þessum stað