Nico Moreaux kvartett - Múlinn jazzklúbbur
Miðvikudagur, 9. desember 2026 · 20:00Harpa · Reykjavík
Miðar frá
5.200 kr.
Vistaðu viðburðinn og við látum þig vita ef dagsetning, tími eða staður breytist.
Lýsing
Lesa meira
Harpa - Björtuloft || 9. desember 2026
Snorri Sigurðarson, trompet
Jóel Pálsson, saxófónn
Nico Moreaux, bassi
Matthías MD Hemstock, trommur
Franski bassaleikarinn Nico, sem er vel þekktur innan djasssenunnar í bæði París og Reykjavík, leiðir á tónleikunum nýjan píanólausan kvartett. Á efnisskránni eru nýjar frumsamdar tónsmíðar ásamt úrvali af uppáhaldslögum Nico eftir hinn goðsagnakennda trommuleikara og tónskáld Paul Motian. Píanóleysið gefur tónlistinni sérstakt rými og leggur áherslu á samspil og frjálsan spuna kvartettsins.