Fara í efni
360expOpin beta
Skrá inn
Af fingrum fram
Tónlist

Af fingrum fram

Fimmtudagur, 29. apríl 2027 · 20:30Salurinn · Kópavogur

Skoða upprunalega vefinnFrá 7.900 kr.

Vistaðu viðburðinn og við látum þig vita ef dagsetning, tími eða staður breytist.

Lýsing

Lesa meira

Salurinn || 2026-2027

Af fingrum fram hefur nú sitt 17. starfsár í Salnum í Kópavogi en í þessari sívinsælu spjalltónleikaröð tekur Jón Ólafsson á móti fjölbreyttum hópi listafólks þar sem einlæg samtöl, skemmtilegar sögur úr tónlistarlífinu og lifandi flutningur ráða ríkjum og skapa þannig einstaka kvöldstund.

Tónleikaröðin á rætur sínar að að rekja til samnefndra sjónvarpsþátta sem meðal annars hlutu Edduverðlaunin árið 2002. Fyrir 17 árum ákvað gestgjafinn að flytja hugmyndina úr sjónvarpssal og yfir á svið Salarins í Kópavogi við mikinn fögnuð landans sem flykkst hafa á tónleikaröðina allar götur síðan.

Jón Ólafsson er samur við sig þennan tónleikaveturinn og fær áfram til sín fjölbreyttan flokk listafólks í einlægt spjall og góða tóna.

Gestir Af fingrum fram 2026-2027 eru eftirfarandi:

17. september 2026: Halli og Gói1. október 2026: Una Torfa15. október 2026: Jón Jónsson5. nóvember 2026:Jónas Sig26. nóvember 2026:Ragga Gísla

//

21. janúar 2027:Mugison11. febrúar 2027:Bríet11. mars 2027:Daníel Ágúst8. apríl 2027: Ólöf Arnalds29.apríl 2027: Una Torfa AUKATÓNLEIKAR6. maí 2027:Sóli Hólm

TónlistTónleikar

Hvar

Salurinn

Hamraborg 6, 200 Kópavogur, Kópavogur

Skoða alla viðburði á þessum stað