Fara í efni
360expOpin beta
Skrá inn
Aftur í viðburði
Tónlist

Jólatónleikar Kammersveitar Reykjavíkur - Sígildir sunnudagar

Sunnudagur, 6. desember 2026 · 16:00Harpa · Reykjavík

Vistaðu viðburðinn og við látum þig vita ef dagsetning, tími eða staður breytist.

Sæktu iPhone-appið

Flytjendur

Lýsing

Lesa meira

Á hinum árlegu jólatónleikum Kammersveitar Reykjavíkur er barokktónlist og hátíðleg stemning jafnan í forgrunni.

Að þessu sinni fær tónlist eftir hinn þýska Georg Philipp Telemann sérstakan heiðurssess í efnisskránni. Hann er eitt afkastamesta tónskáld barokktímans. Á tónleikunum flytur Kammersveit Reykjavíkur tvö verk eftir hann; Concerto grosso í B-dúr fyrir óbó, 2 flautur, fiðlu og hljómsveit og Anna Elísabet Sigurðardóttir leikur einleik í Konserti Telemanns fyrir víólu og hljómsveit.

Auk þess eru á efnisskrá verk eftir vini og samstarfsmenn Telemanns. Carl Philip Emanuel Bach var guðsonur tónskáldsins. Á tónleikunum verður leikin ein af strengjasinfóníum Bach sem hann samdi skömmu eftir að hann hafði tekið við sem eftirmaður Telemanns í Hamborg. Christoph Graupner kynntist Georg Philipp þegar þeir voru báðir við nám og störf í Leipzig. Graupner starfaði síðar við hirðina í Darmstadt og er Tríó sónatan samin þar. Johann Georg Pisendel var konsertmeistari um tíma í Collegium Musicum í Leipzig, tónlistarhópi sem Telemann stofnaði. Pisendel varð síðar mjög áhrifamikill fiðluleikari og tónskáld og starfaði mest allan sinn feril sem konsertmeistari við hljómsveit hirðarinnar í Dresden. Tónleikunum lýkur á hans þekktasta verki, Fantasíu.

Efnisskrá
Christoph Graupner: Tríó-sónata í h-moll GWV 219 fyrir flautu, fiðlu og fylgirödd

Georg Philipp Telemann: Konsert fyrir víólu og hljómsveit í G-dúr TWV 51:G9.
Einleikari: Anna Elísabet Sigurðardóttir

Carl Philipp Emmanuel Bach. Sinfónía fyrir strengi í C-dúr Wg. 182/3

Georg Philipp Telemann: Konsert fyrir trompet og hljómsveit í D-dúr TWV 51:D7.
Einleikari: Zachary Silberschlag

Johann Georg Pisendel: Fantasie. „Imitation des caractères de la danse“
(1687–1755)
Loure
Rigaudon
Canarie
Bourée
Musette: Lentement
Passepied: Gay, accelerando poco a poco
Polonaise: Majesteusement
Concertino: Presto

Tónleikarnir eru um klukkustund, án hlés.

Ókeypis aðgangur fyrir 12 ára og yngri.

Viðbótarupplýsingar

Búið til með gervigreind

Sjálfvirkar tillögur sem haldið er aðskildum frá opinberum upplýsingum skipuleggjanda.

Árlegir jólatónleikar Kammersveitar Reykjavíkur í Harpa með barokktónlist. Efnisskráin inniheldur verk eftir Georg Philipp Telemann, Carl Philipp Emanuel Bach, Christoph Graupner og Johann Georg Pisendel. Einleikarar eru Anna Elísabet Sigurðardóttir og Zachary Silberschlag. Tónleikarnir eru um klukkustund, án hlés. Ókeypis aðgangur fyrir 12 ára og yngri.

Tónlist

Heimild: tix.is