Fara í efni
360expOpin beta
Skrá inn
Aftur í viðburði
Tónlist

Mozart Requiem - Óperukórinn í Reykjavík

Sunnudagur, 24. janúar 2027 · 17:00Harpa · Reykjavík

Vistaðu viðburðinn og við látum þig vita ef dagsetning, tími eða staður breytist.

Sæktu iPhone-appið

Lýsing

Lesa meira

Harpa - Eldborg || 24. janúar 2027

Óperukórinn í Reykjavík býður til stórtónleika í Eldborg þar sem flutt verður eitt áhrifamesta og stórbrotnasta meistaraverk tónlistarsögunnar – Sálumessa Mozarts, Requiem.

Requiem Mozarts er einstakt tónverk sem sameinar dramatískan kraft, djúpa tilfinningu og óviðjafnanlega fegurð. Tónlistin sveiflast á milli ógnar og vonar, myrkurs og ljóss og hefur snert hjörtu tónlistarunnenda í meira en tvær aldir. Mozart samdi verkið á síðustu mánuðum ævi sinnar, en lést árið 1791 áður en hann náði að ljúka því. Síðan hefur það skipað sérstakan sess meðal áhrifamestu verka klassískrar tónlistar.

Með Óperukórnum í Reykjavík koma fram fjórir af okkar fremstu einsöngvurum:

Þóra Einarsdóttir, sópran Guja Sandholt, mezzósópran Elmar Gilbertsson, tenór Bjarni Thor Kristinsson, bassi

Stjórnandi: Aron Axel Cortes

Það er einstakt tækifæri til að upplifa þetta tímalausa meistaraverk í glæsilegri umgjörð Eldborgar í Hörpu. Verið velkomin á tónlistarviðburð sem snertir hjartað og situr lengi í minningunni.

TónlistSviðslistir

Heimild: tix.is