Fara í efni
360expOpin beta
Skrá inn
Aftur í viðburði
Tónlist

Reykjavík Early Music Festival: Hirðdansar og lúðraþytur

Miðvikudagur, 24. mars 2027 · 19:00Harpa · Reykjavík

Vistaðu viðburðinn og við látum þig vita ef dagsetning, tími eða staður breytist.

Sæktu iPhone-appið

Lýsing

Lesa meira

Blæbrigði barokktónlistar í Frakklandi og á Ítalíu á 17. öld voru gjörólík en þó leynir sér ekki að ítölsk áhrif skína einatt í gegn í franskri tónlistarsögu. Hirðtónskáld sólkonungsins, Jean-Baptiste Lully, fæddist til að mynda á Ítalíu og Parísarbúinn Élisabeth Jacquet de La Guerre var í hópi fyrstu tónskálda franskra sem tileinkuðu sér tríósónötuform Arcangelo Corelli og félaga. Georg Muffat, sem varð víðförull um dagana, skapaði hins vegar sinn eigin stíl sem var blanda þessara þjóðlegu hefða. Barokkbandið Brák beinir kastljósinu að gjöfulu samspili tveggja menningarheima á tónleikunum í samvinnu við Olivier Mourault, sem gefur áheyrendum færi á því að kynnast einstökum hljóðheimi náttúrutrompetsins.

Tónleikarnir eru um klukkutími án hlés.

TónlistHátíðir

Heimild: tix.is