Fara í efni
360expOpin beta
Skrá inn
Aftur í viðburði
Tónlist

Aðventutónleikar Sinfóníunnar - Sinfóníuhljómsveit Íslands

Fimmtudagur, 3. desember 2026 · 19:30Harpa · Reykjavík

Vistaðu viðburðinn og við látum þig vita ef dagsetning, tími eða staður breytist.

Sæktu iPhone-appið

Flytjendur

Lýsing

Lesa meira

Sinfóníuhjómsveit Íslands - Eldborg || 3. desember 2026

Það er fátt sem dregur betur fram eftirvæntingu aðventunnar en þokkafull og hlýleg tónlist klassíska tímabilsins. Úr óperu Mozarts um Idomeneo drottningu kemur þokkafull balletttónlist sem er vinsæl ein og sér í tónleikasölum heimsins, utan samhengis óperunnar. Geirþrúður Anna Guðmundsdóttiwr leikur einleik í léttleikandi D-dúr sellókonserti annars meistara klassíska tímans, Josephs Haydn, en konsertar hans fyrir hljóðfærið eru algjör kjarnaverk selló-bókmenntanna og ná alltaf að heilla áheyrendur. Sjaldheyrð er hins vegar sinfónía eftir Mariönnu Martines sem yfirleitt er talin hafa verið fyrsta konan til að semja sinfóníu. Hún náði að rækta tónlistargáfur sínar þrátt fyrir að lifa í karllægum heimi austurrísks tónlistarlífs á átjándu öld. Hljómsveitarstjórinn Matthew Halls stjórnar að lokum hinni svokölluðu Linz sinfóníu Mozarts sem kennd er við borgina austurrísku en þar hafði tónskáldið stutt stopp árið 1783 og kom borginni rækilega á heimskort tónlistarsögunnar með þessari sólbjörtu sinfóníu.

Hljómsveitarstjóri
Matthew Halls

Einleikari
Geirþrúður Anna Guðmundsdóttir

Efnisskrá
Wolfgang Amadeus Mozart Ballettónlist úr óperunni Idomeneo
Joseph Haydn Sellókonsert nr. 2
Marianna Martines Sinfónía í C-dúr
Wolfgang Amadeus Mozart Sinfónía nr. 36 „Linz“

TónlistTónleikar

Viðbótarupplýsingar

Búið til með gervigreind

Sjálfvirkar tillögur sem haldið er aðskildum frá opinberum upplýsingum skipuleggjanda.

Aðventutónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Eldborg, Hörpu, 3. desember 2026. Matthew Halls stjórnar og Geirþrúður Anna Guðmundsdóttir leikur einleik í sellókonserti nr. 2 eftir Haydn. Á efnisskrá er einnig balletttónlist úr óperunni Idomeneo eftir Mozart, Sinfónía í C-dúr eftir Mariönnu Martines og Sinfónía nr. 36 „Linz“ eftir Mozart.

TónlistTónleikar

Heimild: tix.is