Fara í efni
360expOpin beta
Skrá inn
Aftur í viðburði
Í grænni lautu - Sinfóníuhljómsveit Íslands
Fjölskyldan

Í grænni lautu - Sinfóníuhljómsveit Íslands

Laugardagur, 8. maí 2027 · 14:00Harpa · Reykjavík

Skoða upprunalega vefinnFrá 3.100 kr.

Vistaðu viðburðinn og við látum þig vita ef dagsetning, tími eða staður breytist.

Lýsing

Lesa meira

Sinfóníuhljómsveit Íslands - Eldborg || 8. maí 2027

Í grænni lautu er samstarfsverkefni Sinfóníuhljómsveitar Íslands, Listasafns Íslands og Grasagarðs Reykjavíkur. Þar eiga þjóðsögur, tónlist, myndlist og náttúran stefnumót. Við förum í árstíðatengt ferðlag þar sem tónlistin vekur allt að vori og listaverkin leika sér að litagleði sumarsins, fjúka með laufum haustsins og falla í djúpan dvala vetrarins.
Ólafur Egill Egilsson er sögumaður á þessum heillandi og lærdómsríku fjölskyldutónleikum og leiðir tónleikagesti í gegnum litróf árs tíðanna þar sem tónlistin og grasafræðin sameinast myndlistinni sem varpað verður upp á meðan tónleikunum stendur.
Þetta eru fjölskyldutónleikar, sniðnir að ungum áheyrendum og er lengd tónleikanna um ein klukkustund án hlés.

Hljómsveitarstjóri
Hjörtur Páll Eggertsson

Sögumaður og kynnir
Ólafur Egill Ólafsson

Efnisskrá
Antonio Vivaldi Úr árstíðunum
Nikolaj Rimskíj-Korsakov Býflugan
Ingi T. Lárusson Ó, blessuð vertu sumarsól
Miley Cyrus Blóm
Vaughan Williams Geitungarnir, forleikur
Joseph Kosma Haustlauf
Enskt lag Frost er úti fuglinn minn
Íslenskt þjóðlag Krummi svaf í klettagjá

Hvar

Harpa

Austurbakka 2, 101 Reykjavík, Reykjavík

Skoða alla viðburði á þessum stað