Miðar
Vistaðu viðburðinn og við látum þig vita ef dagsetning, tími eða staður breytist.
Lýsing
Lesa meira
Heimur íslenskrar tónlistar
Upplifðu sögu íslenskrar tónlistar
Hvað hefur mótað íslenska tónlist í gegnum aldirnar? Heimur íslenskrar tónlistar leiðir þig í ferðalag um sögu og þróun íslenskrar tónlistar frá landnámi til dagsins í dag. Sýningin varpar ljósi á hvernig náttúra, sagan og samfélagsbreytingar hafa sett mark sitt á tónlist þjóðarinnar.
Með hljóðleiðsögn lifnar sagan við í gegnum frumsamda tónlist, myndræna miðlun og gagnvirka þætti og síðast en ekki síst, tóndæmi úr ríkulegum tónlistararfi Íslands sem hefur vakið athygli langt út fyrir landsteinana.
Opið alla daga kl. 10:00–19:00
Íslenska hljóðleiðsögnin tekur um 45 - 60 mínútur.