Temú jól með Halla, Góa & Jóni Ólafs
Miðvikudagur, 9. desember 2026 · 20:30Salurinn · Kópavogur
Miðar frá
8.500 kr.
Vistaðu viðburðinn og við látum þig vita ef dagsetning, tími eða staður breytist.
Lýsing
Lesa meira
Salurinn | 9.desember 2026
Jólatónleikar með þremur af ódýrustu skemmtikröftum Íslands.
Líklega verður alltof mikið af öllu þegar slegið verður á létta jólastrengi og hressustu jólalögunum verður slátrað í vanfjármögnuðum útsetningum á þessum útsölutónleikum í anda Temú. Halli, Gói & Jón á sannkölluðu jólatilboði!
Þeim til aðstoðar er gítarleikarinn Stefán Már Magnússon, umboðsmaður Temú á Íslandi.