Fara í efni
360expOpin beta
Skrá inn
VÍSUR SVANTES,
Tónlist

VÍSUR SVANTES,

Laugardagur, 7. nóvember 2026 · 16:00Hannesarholt · Reykjavík

Skoða upprunalega vefinnFrá 4.900 kr.

Vistaðu viðburðinn og við látum þig vita ef dagsetning, tími eða staður breytist.

Lýsing

Lesa meira

VÍSUR SVANTES

Í fyrsta sinn á íslensku hið rómaða verk danska meistarans Benny Andersen.

Saga í söngvum þar sem tónlist og texti spila saman með eintökum hætti.

Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson íslenskaði og flytur verkið, en með honum koma fram Gunnar Gunnarsson á píanó og Birgir Steinn Theódórsson á kontrabassa.

Vísur Svantes kom fyrst út í Danmörku fyrir meira en hálfri öld, bæði í bókaformi og á metsöluplötu með höfundi verksins og söngvarandum Povl Dissing. Það er nú talið þjóðargersemi og er á lista yfir einstök verk í danskri tónlistarsögu.

Verkið fjallar um næstum óþekkt og hugsanlega látið ljóðskáld að nafni Svante Svendsen sem bað höfundinn um að semja tónlist við ljóðin sín. Með gamansömum og sérstæðum er sagt frá skáldinu óhamingjusama sem kynnti sig gjarnan þannig: Svante Svendsen, fæddur Svensson, varð viðskila við skánska foreldra mína á Malmö-ferjunni í ágúst 1935 og hef síðan orðið að sjá um mig sjálfur með aðstoð annarra.

TónlistTónleikar

Hvar

Hannesarholt

Grundarstíg 10, 101 Reykjavík, Reykjavík

Skoða alla viðburði á þessum stað